The big trip!

fimmtudagur, mars 24, 2005

Hætta um borð í indverskum lestum.

Ég ákvað að koma svona smá hugleiðingum niður á blað þar sem maður er að bíða eftir að tíminn líði hérna í Orchha. Svo er mál með vexti að ég er að fara í 27 klst. lestarferð niður til Goa þar sem ströndin verður misnotuð hrottalega næstu daga. Ég hef samt smá áhyggjur af glæpamönnum af sérstakri sort sem angra stundum karlkyns ferðalanga í lestunum og þvinga þá til að láta af hendi pening.

Ég varð vitni að svona atviki um daginn en slapp sem betur fer með skrekkinn sem líklega má rekja til þess að ég er helmassaður (miðað við indverjana allavega) og hvítur. Glæpamennirnir hafa líklega bara ekki þorað í mig eða verið hræddir um að ég myndi ekki skilja þá í tilraunum þeirra til að hafa af mér fé. Við Anna vorum í lest á leiðinni frá Kalkútta til Varanasi og tveir strákar á mínum aldri (svona um tvítugt) voru með okkur í klefa. Ég sé þá hvar þrír karlmenn í kvenmannsklæðum koma inn í lestina en ég kippi mér ekki upp við það eftir dvöl mína í Tælandi. Þar eru nefninlega 37% þjóðarinnar karlmenn, 40% kvenmenn en svo er 23% þjóðarinnar kynskiptingar sem eru bæði karlmenn og kvenmenn eða hvorugt. Jæja ég hef ekki séð mikið af þessu hér í Indlandi þar sem mikill tepruskapur og íhaldssemi einkennir öll samskipti kynjanna.

Stelpustrákarnir vinda sér inn í klefann til okkar og segja eitthvað við indversku strákana sem sitja á móti okkur. Ég hef ekki hugmynd um hvað er í gangi en er svolítið hissa þegar strákarnir rífa upp veskið sitt og rétta stelpustrákunum pening. Við Anna lítum á hvort annað og erum þarna orðin mjög forvitin enda eru indverjar ekkert mikið í því að henda frá sér pening í tíma og ótíma. Þessu næst snúa stelpustrákarnir sér að mér og þegar þær sjá að ég hef ekki hugmynd um hvað málið snýst (og væntanlega hafa þær vitað að ég gæti tekið þær á yppon ef mér sýndist svo), halda þær för sinni áfram um lestarvagninn með látum.

Í næstu lestarferð okkar kynntumst við þremur indverskum strákum sem töluðu góða ensku og voru mjög almennilegir. Ég spurði þá um hvað málið snýst og þeir útskýrðu það fyrir mér. Þessir stelpustrákar eru fólk sem hefur annaðhvort fæðst með typpi og brjóst eða hvorugt og afla sér tekna með því að kúga fólk. Þessir stelpustrákar gera sér það að leik að þukla á karlmönnum, dansa í kringum þá eða byrja að afklæðast ef þeir neita að reiða af hendi fé. Indverjar eru svo miklar teprur að það er víst algjör hneisa að láta annan karlmann sýna sér kynferðislega athygli og því rífa þeir frekar upp háar fjárhæðir en að láta sjást að stelpustrákur sé eitthvað að atast í þeim. Þessir stelpustrákar mæta einnig óboðnir í brúðkaup, skírnarveislur og aðrar samkomur og abbast upp á gestina nema gestgjafinn múti þeim til að láta sig hverfa. Þessir þrír indælu indverjastrákar sem við vorum að spjalla við sögðu okkur að oft væru gestgjafar að borga 2000 rúpíur til að losna við þetta áreiti en það slagar upp í mánaðarlaun sumra hérna í Indlandi.

Ég sagði þeim nú að svona stelpustrákar mættu nú alveg dansa í kringum mig ef þeir vildu og jafnvel pota í mig þar sem ég væri nú ýmsu vanur og ég léti ekki kúga mig. Þá sögðu þeir að stelpustrákarnir gengju nú oft lengra en það og að grípa í typpin á gaurum væri eitt trixið sem þeir hafa og að þeir gætu nú gengið langt í því að kúga út peninginn. "Þeir gætu nú bara reynt það við mig" sagði ég "ég læt nú engan karlmann komast upp með það að misnota mig eitthvað". "Þú getur ekki slegist við þá" svöruðu þá litlu indverjastrákarnir þrír. "Af hverju ekki" spurði ég þá og hélt að þeir ætluðu að gefa mér einhverja ræðu um að maður mætti ekki lemja stelpur. "Út af því að þetta eru ekki strákar og þetta eru ekki stelpur og þess vegna ná engin lög yfir þá. Það er ekki hægt að setja þá í fangelsi" svöruðu þá litlu indverjarnir. Ég var alveg mát.

Því óttast ég nú mest að vera misnotaður kynferðislega af indverskum furðudýrum um borð í lest á leiðinni til Goa.

Valgeir

e.s. Svona til íhugunar má skjóta því hér inn að í Indlandi má stundum sjá fólk sem þjáist af vansköpun sem maður verður ekki var við heima. Auka fingur er t.d. eitthvað sem við höfum séð svolítið af hér en á Íslandi væri svoleiðis bara fjarlægt við fæðingu. Einnig eru margir vanskapaðir á hátt sem auðvelt væri að laga ef viðkomandi hefði færi á læknisaðstoð sem við á vesturlöndum teljum sjálfsagða. Því er líklegt að fjöldinn allur af indverjum (sem telja meira en milljarð) séu t.d. með tvö typpi eða ekkert.

3 Comments:

  • Ég var að lesa fyrir mömmu og pabba, þau voru ekki í ástandi til að lesa þetta sjálf, gömlu hjúin.
    Við getum ekki beðið eftir að lesa meira um stelpustrákana og hvað þá um 27 klst. ferðina.

    Kveðja
    Kata og gamla settið

    By Anonymous Nafnlaus, at 2:44 PM  

  • Hvada hvada... thau eru nu ekki svona gomul! Hvad var i gangi??

    By Blogger Valgeir & Anna, at 5:42 PM  

  • (þú varst að skrifa um "stelpustrákana" sem þú komst í kinni við).
    Ég get nú ekki beðið eftir að lenda í eitthverju svona, hvað þá að ná því á filmu. Ég mundi ábyggilega borga þeim slatta til að meiga taka þá upp. Sé þetta alveg fyrir mér.
    Er þetta ekki á Indalandi, veistu á hvaða svæði þeir eru mest?

    By Anonymous Steingrimur G, at 6:48 AM  

Sendu inn athugasemd

<< Home