The big trip!

mánudagur, mars 28, 2005

Kettir og mýs

"Hvernig myndi þér líða ef þú værir í lest á föstudagskvöldi í fátækrahverfi í Bandaríkjunum og í lestinni væru bara fátækir svartir karlmenn" spyr ég Önnu. "Ekki vel" svarar hún. Ástæðan fyrir því að ég spurði var sú að við vorum í lestarvagni þar sem voru aðeins tvær aðrar konur fyrir utan Önnu og við vorum einu útlendingarnir í vagninum. Það voru átján hólf í vagninum og í hverju hólfi sátu 6-8 karlmenn og svo var gólfið líka þéttsetið þannig að það var varla pláss fyrir bakpokana okkar þar. Ég áætla því að um 150 karlmenn hafi verið í vagninum þetta föstudagskvöld og við vorum að fara í 40 mínútna viðstöðulausa lestarferð um sveitir Indlands.
Ekki hjálpaði til að við hliðina á okkur sátu 3 ungir karlmenn sem tóku ekki augun af okkur. Einn þeirra stóð svo upp og tróð sér til annarra ungra karlmanna sem sátu á öðrum stað í lestinni sem byrjuðu að gjóa augunum á okkur. Allir vita að túristar eru oft með mikið fé á sér miðað við hvað fátækt fólk hefur á milli handanna í þessu landi og ef að hægt er að hafa mánaðarlaun uppúr krafsinu (t.d. 5000 isk.) við það eitt að ota hníf að útlendingi, af hverju ekki að gera það?

Það var þá sem ég tók af mér bakpokann og sagði Önnu að gera það sama því ef eitthvað kæmi uppá vildi ég geta brugðist hratt við og þá er ekki gott að hafa 20 kílóa hlunk reyrðan við bakið á sér. "Hvernig væri þetta ef ég væri ein hérna" spurði Anna og ég svaraði "þú værir komin á forsíðu DV eftir þrjá daga".
Ég er nýbúinn að lesa "The Bourne Supremacy" og því var ég kannski með einum of mikið ofsóknarbrjálæði en ég sagði Önnu að ef eitthvað gerðist þá ætti hún að stökkva á neyðarbremsuna og á meðan myndi ég draga upp piparúðann sem ég var búinn að taka í lófann og sprauta á þá sem væru að abbast upp á okkur. Við töluðum saman í hálfum hljóðum og blótuðum því að hafa ekki tekið öðruvísi ferðamáta í staðinn fyrir að vera að spara pening. Einnig var ég stöðugt að horfa í kringum mig til að fylgjast með því hvort að einhver væri að gera sig líklegan til að hafa af okkur pening, bakpoka eða líf okkar.

Við komumst á áfangastað heil á höldnu og hafði þetta stress verið til einskis sem betur fer. Nú hlærð þú kannski að þessu ofsóknarbrjálæði í okkur en ég get sagt þér það að Mike Tyson hefði verið feginn að komast þaðan út.

Núna erum við í Goa í suður Indlandi þar sem bjórinn heitir King Fischer, væntanlega í höfuðið á Íslandsvininum Bobby "the chess king" Fischer. En svona án gríns þá er sólin hérna ekkert grín þar sem sun block nr. 36 á ekki séns í geislana hennar. Í Tælandi vorum við komin í þann pakka að leggjast út í sólbað í svona 30 mínútur án nokkurrar varnar en hérna berum við á okkur vörn nr. 36 áður en við förum út en endum með sólbruna. Þetta er bara geðveiki!

Ég ætla að hætta þessu bulli, ég er farinn út að lemja einhvern Indverja til að hefna mín fyrir þennan tilfinningalega óstöðuleika sem ég varð fyrir í lestinni um daginn.

Valgeir

4 Comments:

  • Sælt veri fólkið gaman af því að það gengur vel hjá ykkur. Ástæðan fyrir því að stelpu strákarnir bögguðu ykkur ekki neitt er að þeir hafa haldið að Valli væri einn af þeim, svo einfalt er það nú. Kveðja Nonni

    By Anonymous nonni, at 6:08 PM  

  • Hæ hæ .. eitthvað var bloggið að stríða mér í gær þegar ég setti inn comment koma upp server 5000 Erro þannig að ég fór bara út og aftur inn og við það kom commentið 4 sinnum jæja alla vega nóg að lesa aftur og aftur..
    En Valgeir minn er tauginn orðin strekkt.. og er ykkur ekki farin að hlakka til að fara til Evrópu heim?? mér heyrist að þetta sé að verða gott. Hlakka til að sjá ykkur vonandi ekki eftir svo langan tíma..
    Kossar og knús
    Mamma

    By Anonymous Nafnlaus, at 6:26 PM  

  • Já það er eitthvað furðulegt í gangi hérna. Sama er að gerast fyrir mig þegar ég er að posta blogg. Virðist ekki fara inn en kemur svo allt inn. Það góða er að ég get deletað því aftur en svo er það líka að ganga eitthvað illa... allt í ruglinu, eins og ég segi þetta net hérna er að ganga af okkur dauðum!

    Nonni!! Þú hefur líklega bara rétt fyrir þér... hehehe!

    By Blogger Valgeir & Anna, at 7:41 PM  

  • Það gengur ekki vel að koma þessum "commentum" í gegn. Reyndi í fyrradag og það tókst ekki. Reyni aftur núna. Valli ég treysti þér vel til að taka í lurginn á þessum Indverjgum ef þeir eru eitthvað að abbast upp á ykkur. Hafa Indverjar náð langt í boxi, karate eða júdó? Ég svo ég muni.
    Hafið það gott.
    Pabbi

    By Anonymous Nafnlaus, at 10:49 PM  

Sendu inn athugasemd

<< Home