The big trip!

föstudagur, apríl 01, 2005

Bögg á ströndinni

Ég verð nú að dást að framtakssemi sumra hér í Indlandi en stundum ganga þeir of langt. Það er leiðinlegt áreiti hérna á ströndinni alltaf því að tugir sölumanna ganga á milli baðgesta og reyna í sífellu að selja þeim eitthvað glingur og svo er einnig mjög mikið um betlara sem koma upp að manni og láta mann fá samviskubit yfir því að liggja í sólbaði með bjór og góða bók á meðan þeir eiga ekki almennilegt húsnæði.
Sumir veitingahúsaeigendur/sólstólarekendur vaða hiklaust að þessu fólki með prik og lemja það eins og harðfisk fyrir að abbast upp á viðskiptavini þeirra en aðrir hafa gengið ennþá lengra. Margir eru nefninlega byrjaðir á því að hafa stóra hunda bundna við sólstólana og svo eru hundarnir þjálfaðir í því að bíta betlarana sem koma með útrétta höndina. Ég hef ekki séð marga vesturlandabúa nýta sér þessa þjónustu þar sem þeim finnst þetta væntanlega bara ekki viðeigandi en ég var orðinn svo þreyttur á þessu pakki sem er alltaf að abbast upp á mann hérna að ég ákvað að kýla á þetta í eitt skipti, svona bara til að prófa.

Þetta fór þannig fram að við gengum að sólstólunum með eigandanum og svo gáfum við hundinum hundakex sem hann var greinilega ánægður með. Á meðan eigandinn stóð hjá, komum við okkur fyrir og ég sá fram á rólegan dag án betlara og sölu pakksins. Eigandinn lét sig svo hverfa og rétt þegar ég er að sofna, byrjar hundurinn að gelta eins og vitleysingur og veður í áttina að einhverjum sölumönnum sem eru þó í 20 metra fjarlægð. Ég er nú ekki hræddur við hunda en mér var ekki sama um þetta skrímsli sem var þarna geltandi rétt hjá mér. Auðvitað létu nú sölumennirnir okkur samt í friði.
Greinilegt var að þetta virkaði þar sem við vorum sama sem ekkert trufluð í rúman klukkutíma en það hefur ekki gerst í þessu landi hingað til. Ekki veit ég samt hvað gerðist næst en hundurinn lá á milli mín og Önnu og væntanlega hefur hann verið sofandi því þegar ég lít upp frá bókinni minni er sjúskuð, eldri kona komin nokkuð nálægt okkur og er að betla. Hún hefur væntanlega ekki séð hundinn en það er eins og hann vakni skyndilega og rýkur í konuna sem er engan veginn nógu snögg til að flýja frá honum. Ég sé svo bara hvar hundurinn glefsar í greyið konuna sem dettur í sandinn og reynir að skríða í burtu frá kolbrjáluðum hundinum en hann hafði náð góðu taki í kjólfaldinum á konunni og var að draga hana til sín. Okkur Önnu dauðbregður og Anna gargar á eigandann sem hvergi er sjáanlegur en ég stekk aftan á hundinn, toga í hálsólina á honum og reyni að draga hann frá konunni. Það tekst að lokum en hann náði samt að glefsa það illa í konugreyið að það blæddi vel úr kálfanum og lærinu á henni og svo var kjóllinn hennar að sjálfsögðu rifinn.

Eigandinn kemur svo að lokum hlaupandi til okkar þar sem ég er eitthvað að bogra yfir grátandi konunni og að sjálfsögðu er Anna farin að gráta líka enda ekki á hverjum degi sem maður verður vitni að svona dæmi. Ég get ekkert talað við konuna og lítið við eigandann vegna tungumálaörðuleika en í staðinn fyrir að hlúa að konunni og fara með hana til læknis, þá hreytir eigandinn einhverju í hana og réttir henni 100 rúpíur (140 isk) með svona fyrirlitningarsvip eins og hún ætti nú bara að vera sátt við að fá eitthvað.
Ég var svo forviða að ég horfði bara á gömlu konuna haltra í burtu og fattaði ekki einu sinni að gefa henni einhvern smá pening í viðbót eða eitthvað. Þegar við lögðumst svo aftur í sólbað, bað ég eigandann vinsamlegast um að fjarlægja hundinn sem hann og gerði.

Ég var svo að tala við Gunna vin minn heima á Íslandi á MSN í dag og var að segja honum frá þessu öllu saman og hann sagði mér að það væri einmitt frétt um þetta í DV á miðvikudaginn síðasta. Þar var talað um að þetta væri orðin algeng aðferð til að vernda túristana frá ágangi sölumanna og annarra og að þetta tíðkaðist við svartahafið í Búlgaríu, í Indónesíu, Indlandi og annarsstaðar. Svo var víst mynd frá Indlandi með fréttinni. Ég hef ekki séð þetta nema hérna í Indlandi og það eitt er víst að ég prófa þetta ekki aftur. Áður en þið dæmið mig fyrir að hafa reynt þetta þá verðið þið að skilja að maður er orðinn mjög þreyttur á liðinu sem gargar á mann í hvert skipti sem maður gengur framhjá sölubás eða búð og svo er alltaf verið að trufla mann þegar maður er að tjilla á ströndinni. Ef þið setjið ykkur í mín spor, mynduð þið hafa prófað þetta líka? Endilega lesið líka greinina í DV og sendið inn komment hérna um hvað ykkur finnst.

Þangað til næst
Valgeir

e.s. það eru komnar inn nokkrar nýjar myndir frá Indlandi

3 Comments:

  • Ja hérna. Stundum er ég ekki alveg viss um hvort þú ert að segja satt eða ekki. Ef hann hefði bitið konuna á háls og hún keyrð beint í líkhúsið hefði ég kannski farið að efast. Ég skil hins vegar vel að áreitið hefur verið þreytandi og því freistanid að prófa eitthvað til að draga úr því.
    Kveðja
    Pétur (Önnupabbi)

    By Anonymous Nafnlaus, at 2:45 PM  

  • Efasemdir þínar eiga rétt á sér þar sem þetta var innlegg mitt til 1.apríl gabbanna í ár.
    Ég var að vonast til að sem flestir myndu nú hlaupa til og reyna að finna miðvikudags DV og senda inn komment hingað um hversu hrikalegt þetta væri með hundana.
    Svo lítur bara út fyrir að ég sé fíflið eftir allt saman þar sem þú Pétur ert sá eini sem sendir inn komment og þú féllst ekki fyrir þessu.
    En að öllu gamni slepptu og án lyga, þá varð Anna vitni að því þegar veitingahúsa eigandi lamdi konu (með tvö smábörn með sér) í andlitið vegna þess að hún var að betla. Maðurinn var líka með prik með sér en sem betur fer notaði hann það ekki.

    Hilsen
    Valgeir

    By Blogger Valgeir & Anna, at 7:23 AM  

  • djö maður mér fannst þetta algjör snilld, ég sá þig alveg vera hlæja af gömlu konunni, ég hefði allavega gert það og síðan sá ég þig alveg slá hana Önnu fyrir það eitt að væla með henni og það sem þú hefðir gert við hundinn ja ég ætla ekki að tjá mig neitt um það hér en það hefði verið rosalegt kveðja nonni

    By Anonymous Nafnlaus, at 3:03 PM  

Sendu inn athugasemd

<< Home