Góa!
Já Góa maður fínn staður bara. Miklu stærri en ég hélt og inniheldur fullt af ströndum hver með sitt þema að virðist sem laðar að fólk eftir því hvað það er að sækjast eftir. Palolem þar sem við vorum fyrst var fallegur og fínn staður. Ódýrt hótelherbergi og hrein strönd sem ég bjóst kannski ekki við hér í Indlandi miðað við hinar venjulegu götur borgarinnar, en þeir geta þetta víst Indverjarnir ef þeir leggja sig fram. Við vorum aðallega í því auðvitað bara að sóla okkur og hafa það gott. Fórum í bátsferð einn daginn til að skoða höfrunga. Við fórum tvö í litlum bát tveimur Inverjum, annar stýrði á meðan hinn stóð og hafði augum opin fyrir hoppandi hvölunum. Eftir næstum hálftíma siglingu og ég orðin nokkuð vonlítil um að sjá nokkuð bendir Indverjinn út í sjóinn ofsalega ánægður (ekki skrýtið kannski þar sem við vorum búin að semja um að ef við myndum ekki sjá neitt myndum við bara borga hálft verð). Við byrjum að rýna í sjóinn og eftir smá stund held ég bara að ég sé farin að ímynda mér að ég sjái eitthvað þegar gráir uggar byrja að synda í kringum okkur einn af öðrum. Þeir hættu sér nú ekki of nálægt okkur en samt nógu nálægt til að sjá þá vel. Öðru hvoru tóku þeir sig svo til og tóku fyrir okkur sveiflu með trýni eða sporði upp í loftið. Ofsalega var ég nú glöð. Hef aldrei séð þá svona "beint" áður. Við reyndum nú að taka myndir en gekk því miður ekki vel!
Við hittum eins og fyrr segir stelpu aftur hér sem við hittum í Laos. Systir hennar kom og hitti hana hér í Indlandi og þær hafa verið að bruna saman í gegnum landið því systir hennar hefur bara 1 mánuð í ferðalagið. Við fórum með þeim svo hingað á aðra strönd sem kallast Anjuna. Um tveggja tíma ferðalag frá hinum staðnum. Hér er stór markaður sem haldin er á hverjum miðvikudegi og var það ástæða þess að við ákváðum að skipta um stað. Við vorum búin að búast við miklu meira af fólki hérna en þessi staður hefur verið þekktur fyrir að halda brjáluð "rave". Við fréttum svo að því að það er víst búið að banna þau út af öllum þeim óþverra sem þeim víst fylgdi. Mega þeir hérna þá þakka fyrir þennan mikla miðvikudagsmarkað því annars efast ég um að nokkur myndi leggja leið sína hingað, því ekki er ströndin eitthvað sem vert er að sækjast í hvað þá annað.
Við vorum spennt að kíkja á þenna markað þó ekki gátum við mikið verslað vegna peningaleysis sem er alltaf leiðinlegt. En alveg sama, nokkuð af hlutum og peningum tókst að skipta um eigendur.
Við munum halda til Mumbai á morgun þar sem við munum stoppa í tvo daga áður en haldið er til Evrópu. Þetta er sem sagt að líða undir lok. Ég er bara ekki að trúa því, þessi tími er búin að líða svo hratt en samt finnst mér ég vera búin að vera svo lengi í burtu. Kína er til dæmis eitthvað sem mér finnst hafa gerst fyrir ári síðan í annari ferð.
jamm svona er þetta... eins og þið hafið tekið eftir er komin smá þreyta í mannskapinn en samt langar mig allt í einu ekki til að þetta endi. Þetta er búinn að vera frábær tími og hamingjuboxið hefur verið yfirfullt allan tímann. Bara stundum mismikið!!
heyrumst!
Anna Sigga.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home